« BrennpunktDýrðin, dýrðin »

Enn er mótmælt

17.11.08

Varanlegur tengill 22:47:49, eftir beggi Tölvupóstur , 206 orð   Icelandic (IS)
Flokkur: Þjóðfélagsmál

Enn er mótmælt

Mætti að sjálfsögðu á Austurvöll síðastliðinn laugardag eins og allir viti bornir menn1. Mætti svo í kvöld á borgarafund í þau húsakynni sem mínum huga heita Sigtún og ég borðaði stundum í þegar höfðustöðvar Símans voru enn í Landssímahúsinu. Á fundinum var fjölmenni og var fundurinn ágætur. Ágætir frummælendur og fjölmiðlamenn ágætir líka. Játuðu á sig aumingjaskap og var gerður ágætur rómur að því.

Stefnan er sett á Háskólabíó næsta mánudag svo það er eins gott að allir mæti þá.

Mér var bent á það á laugardaginn að merki Landsbankans er horfið af gamla Landssímahúsinu en það var nokkuð áberandi séð frá Austurvelli. Ætli það hafi verið tekið til þess að mannfjöldinn beindi ekki reiði sinni að því húsi?

Ég er reyndar afar ósáttur við að fólk sé að henda matvælum í Alþingishúsið. Í fyrsta lagi er heimskulegt að henda ætum matvælum og í öðru lagi trúi ég því staðfastlega að hús séu yfirleitt saklaus.

1. Í íslensku máli hagar svo til að konur eru líka menn

No feedback yet

Leggja inn athugasemd


Your email address will not be revealed on this site.

Vefslóðin þín verður sýnd.
(Línubrotum breytt í <br />)
(Name, email & website)
(Allow users to contact you through a message form (your email will not be revealed.)